top of page
Reading with Coffee

Á döfinni

Untitled_Artwork 3.png
sara-kurfess-QyjwUq5Amp8-unsplash.jpg

Ný námskeið hefjast
í
 maí og ágúst! 
Sjálfsþekking
- leið til lífs í flæði

Fjarnámskeið

á Zoom

Fimmtudagar 2. maí - 6. júní

kl. 10.30 - 12

Staðnámskeið

á bókasafni Kópavogs, Hamraborg 6a

Þriðjudagar 7. maí - 11. júní

kl. 10.30 - 12

NÝTT!

ATH - nú er hægt að sækja námskeiðið í gegnum VIRK starfsendurhæfingarsjóð

Að gefa sér stundir til svara
Þetta námskeið færir þér stórar spurningar. 
Spurningar sem skipta þig máli og enginn annar en þú getur svarað, fyrir þig.
 
Spurningar sem færa fram svör sem endurstilla áttavitann þinn á vellíðan og merkingarbæra þætti í þínu lífi. 
 
Svör sem vilja koma upp á yfirborðið. 
 
Svör sem breyta einhverju fyrir tilveru þína og minna þig jafnframt á úr hverju þú ert gerð(ur)/gert.
Komdu á námskeið sem snýst um þig og þína innri heima,
- þína sjálfsþekkingu
 
Þetta námskeið hefur það að markmiði að þú aukir og dýpkir þína sjálfsþekkingu, þér til aukins sjálfstrausts, gleði og vellíðanar í eigin lífi.
Það er gert fyrir fólk sem hefur áhuga á að líta aðeins undir yfirborðið og kanna leynda fjársjóði í eigin fari. Það er jafnt fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í sjálfsvinnu sem og þau sem hafa talsverða reynslu á því sviði en langar til að fá nýja vinkla, æfingar og spurningar til að vinna með. 
 
Að beina athyglinni að ríkjandi styrkleikum og því sem við viljum allra helst upplifa í lífinu er mjög áhugaverð og kröftug blanda. Oft er það nefninlega svo að við erum töluvert meðvituð um vankanta okkar og hvað það er sem við viljum ekki upplifa, en höfum kannski ekki skerpt svo vel á því hvar við erum best og hvað það er sem við raunverulega viljum mest.
 
Ég geri ráð fyrir að þú vitir nú þegar fjölmargt um það hver þú ert sem manneskja, hverjir þínir helstu styrkleikar eru, hvað þú hefur að gefa og hvað þig langar til að fá út úr lífinu. Þessi vitneskja er ekki bara góð og hentug til að hafa bakvið eyrað, hún er í raun nauðsynleg forsenda þess að andleg heilsa þín megi blómstra. Slíkt mikilvægi þarf varla að tíunda hér. 
Þú veist best hvað þér er fyrir bestu
Hefurðu sótt þessa visku nýlega, þér til hjálpar í lífinu?
Það sem þetta námskeið gerir er að hjálpa þér að finna út hvað þetta besta er svo þú megir betur njóta þess í eigin lífi. Við erum ekki alltaf fyllilega meðvituð um það sem innra með okkur býr þó verðmætin séu til staðar, til þess þarf að spyrja réttu spurninganna - en það er eitt aðal verkefni þessa námskeiðs. 
Svörin þín vísa þér veginn þangað sem þú vilt fara
Á þessu námskeiði erum við að leita eftir þínum réttustu svörum, fyrir þig, í dag. Við viljum fá þau upp á yfirborðið svo þú megir stilla þinn gullna áttavita eftir þeim. Þannig að þú getir bæði sóst eftir og um leið laðað til þín allt það sem er þér verðmætt og mikilvægt í dag. Þín svör trompa allt annað og við berum okkur ekki saman við neinn annan en okkur sjálf í fortíð, nútíð og framtíð. 
Ferðalag með 6 viðkomustöðum
 
Námskeiðið er byggt upp sem skemmtilegt og gefandi innra ferðalag sem byggir á eftirfarandi 6 viðkomustöðum:

Styrkleikar - vika 1

  • Hverjir eru þínir kjarnastyrkleikar? 

  • Hvernig eru þeir í sínu besta jafnvægi? 

  • Hvaða máli skiptir það fyrir okkur að nýta okkar helstu styrkleika í daglegu lífi? 

 

Það búa styrkleikar í okkur öllum, stórum sem smáum. Einstakir meðfæddir eiginleikar sem mikilvægt er að finna og rækta, bæði okkur sjálfum og umhverfi okkar til góðs. Hér skoðum við styrkleika okkar út frá ýmsum sjónarhornum og veltum fyrir okkur hvaða ríkjandi krafta við erum að vinna með í eigin fari. Við finnum út hvernig við getum sem best virkjað þá og hvernig okkur líður best með að tjá þá.  

Sköpun - vika 2

  • Hvað finnst þér gaman að skapa, búa til?

  • Hvernig líður þér þegar þú skapar?

  • Hvaða máli skiptir það að nýta sköpunarkraftinn?

 

Að skapa þýðir að búa til eitthvað nýtt úr því sem fyrir var. Allt í náttúrunni er í eðli sínu skapandi og við þar meðtalin. Náttúran er í sífelldu sköpunarflæði þar sem efni umbreytast og nýtt líf verður til. Við skoðum okkar innbyggðu þörf fyrir að búa eitthvað nýtt til, hvaða nafni sem það nefnist. Við lítum tilbaka yfir farinn veg og finnum þær stundir sem við höfum gleymt okkur í leik og dundi. Við veltum því einnig fyrir okkur hvernig okkur langar að skapa í dag og í framtíðinni. 

Sjálfstraust - vika 3

  • Hvað er heilbrigt sjálfstraust og hvaðan kemur það? 

  • Hvernig vilt þú hafa þitt sjálfstraust?

  • Á hvaða sviðum lífsins upplifir þú þig í dag með sterkt sjálfstraust?

Sjálfstraust snýst um trú á sjálfan sig og eigin verðleika. Sjálfstraust snertir svo til alla fleti lífs okkar en er þó mismunandi eftir hinum ýmsu sviðum lífsins. Við förum yfir hugtakið sjálfstraust, skoðum skilgreiningar á því og veltum fyrir okkur mikilvægi þess í eigin lífi. Sjálfstraust er ekki fasti heldur eiginleiki sem má þróa og efla eins og mann langar til. 

 

Framtíð - vika 4

  • Hvaða merkingu hefur það fyrir þig að velta framtíðinni fyrir þér

  • Vilt þú eiga framtíðarsýn sem kveikir undir ástríðu þinni?

  • Hver er heitasta ósk þín um þína eigin framtíð?

 

Framtíð er allur tími héðan í frá, hvert andartak frá því andartaki sem við lifum hverju sinni. Velta má framtíðinni fyrir sér frá næsta degi, næsta mánuði, næstu 5 eða 50 árum. Framtíðardraumar eiga að virkja ímyndunaraflið, opna dyr og glugga, stækka okkur og um leið færa okkur nær sjálfum okkur.  Þeir eiga að snerta okkar innstu hjartastrengi. 

Frelsi - vika 5

  • Hvað merkir hugtakið frelsi í þínum huga? 

  • Hvar upplifir þú mesta frelsið í þínu lífi?

  • Á hvaða sviði lífsins þarftu helst á auknu frelsi að halda?

 

Frelsi þýðir að vera frjálsí sinni einföldustu mynd. En hvað þýðir það fyrir okkur? Við skoðum frelsið út frá sjálfsákvörðunarkenningunni og þeirri tilfinningu sem við tengjum helst við frelsi. Við skoðum mismunandi þarfir okkar fyrir frelsi á hinum ýmsu sviðum lífsins og skilgreinum einnig grunnþörf okkar og óskastöðu. 

Flæði - vika 6

  • Hvað er flæðisástand? 

  • Hvernig virkar það og hvenær ertu í flæði?

  • Hvernig viltu að líf þitt flæði áfram?

 

Flæði er ástand sem nærir okkur og hefur mikilvægu hlutverki að gegna í allri streitu- og álagsstjórnun. Við skoðum hugtakið flæði út frá kenningu um ástand flæðis, sem og notum það sem huglægt mót til að leggja yfir lífið og skilgreina óskaflæði þess hverju sinni. Við veltum þessu hugtaki fyrir okkur og finnum okkar draumaárfarveg að renna um. 

Árangur á sviði sjálfsþekkingar 

 

Á námskeiðinu ætlum við að rýna vel í alla þessa þætti, svara spurningum og gera æfingar sem dýpka bæði skilning og þekkingu á eigin sjálfi í tengslum við þá. Mikil hvatning og gleði verða til staðar. Við tökum vinnuna alvarlega en höfum þó alltaf stutt í gleði, húmor og æðruleysi gagnvart hlutunum og okkur sjálfum. 

kin

Námskeiðinu fylgir falleg 115 blaðsíðna vinnubók, sem er jafnt fræðandi sem styðjandi. Þegar námskeiðinu lýkur hefur þú svarað fjölmörgum kröftugum spurningum sem leiða þig áfram til lífs í því flæði sem þú óskar helst.

Kynningarmyndband

 

Hér má finna 8 mínútna kynningarmyndband um bókina og námskeiðið: 

 

 

 

Fyrirkomulag:

Við hittumst í 6 skipti á tímabilinu sem spannar alls 6 vikur, en í boði eru bæði staðnámskeið og fjarnámskeið. 

Hvert námskeið er kennt í litlum hópum með að hámarki 8 manns í hverjum hóp.

Fullur trúnaður ríkir

Ný námskeið hefjast í maí og ágúst 2024:

  • Fjarnámskeið eru á Zoom þar sem hver kemur sér vel fyrir í eigin umhverfi fyrir góða stund saman á skjánum.

 

Fimmtudagar milli kl. 10.30-12.00:

2., 9., 16., 23. og 30. maí og 6. júní

 

Miðvikudagar milli kl. 10.30-12.00:

7., 14., 21. og 28. ágúst og 4. og 11. ágúst

  • Staðnámskeið eru í Beckmannsstofu, fundarherbergi á jarðhæð bókasafns Kópavogs að Hamraborg 6a.

 

Þriðjudagar milli kl. 10.30-12.00:

7., 14., 21. og 28. maí og 4. og 11. júní

Námskeiðið er unnið út frá hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði, menntavísinda og markþjálfunarÞað var þróað með styrk frá VIRK starfsendurhæfingarsjóði og er hægt að sækja sem úrræði á vegum VIRK. 

 

​Verð á námskeiði er 44.000,- kr með innifalinni veglegri vinnubók sem er send heim til þátttakenda viku fyrir námskeiðsbyrjun til undirbúnings. 

Fyrir þátttöku og nánari upplýsingar, vinsamlegast sendið tölvupóst á ashildurhlin@gmail.com eða hafið samband í síma 842-2711

Þegar námskeið hefur verið staðfest með greiðslu þarf að fylgja með heimilisfang til að senda bókina á, sem og kennitala fyrir kvittun.

Kær kveðja og ég hlakka til að sjá þig!

Áshildur Hlín

 

Millifærsluupplýsingar:

banki: 301 - 26 - 7524

kt. 571220 - 1640

151887252_789707371981479_4012542589069541161_n.jpg
  Sjálfsþekking & Sjálfsást

Oft getur aukin þekking opnað leiðir til meiri skilnings, samhygðar og væntumþykju.

Þátttakendur hafa þetta að segja:

Frábært námskeið,
takk kærlega fyrir mig :)
Frábært námskeið :)
Ofboðslega skemmtilegt og fær þig til að kafa djúpt.
Námskeiðið er mjög, mjög gott og sett fagmannlega fram.
Þetta námskeið hefur veitt mér þá innsýn og hugarró sem þarf til að sjá hlutina í jákvæðara samhengi. Hérna fékk ég þá verkfærakistu sem mun nýtast mér um ókomna tíð. Við eigum öll skilið að vera hamingjusöm og líða vel í eigin skinni og þetta námskeið ögraði mér á þann hátt að ég þurfti að staldra við og líta inná við og taka á þeim hlutum hjá mér sjálfri sem setið hafa á hakanum í gegnum árin.
Ég get ekki fundið nógu sterk orð hversu þakklát ég er fyrir þetta námskeið og hversu gott það hefur gert fyrir mig. Þetta hefur verið erfitt, ljúft og mjög lærdómsríkt en hálfnað verk nú hafið er. Takk fyrir mig. 
Þetta námskeið var allt í senn alveg eins og ég hélt en á sama tíma fór það fram úr mínum björtustu vonum. Ása er einstök að ná fram góðu flæði og spyrja réttu spurninganna og nýtir sína frábæru menntun, þekkingu og reynslu að ýta við manni - ótrúlega blíðlega en samt sem hristir upp í manni. 
Svo lengi sem maður mætir með opinn huga og tilbúin að vinna vinnuna þá er ekki hægt að tapa á þessu námskeiði! Takk Ása
Halla Björg
Námskeiðið hennar Áshildar var svo ótrúlega gefandi fyrir mig, að fá að ræða um erfiða hluti og fá stuðning og hughreystingu og ekki síst verkfæri til að takast á við hlutina  á jákvæðan hátt og breyta eða skipta hugarfarinu gagnvart þessum erfiðu hlutum í lífinu.
Áshildur hefur einstaklega góða nærveru og þess vegna auðvelt að tengjast henni og treysta. Ég mæli með námskeiðinu fyrir alla sem vantar leiðsögn fyrir meiri jákvæðni inn í lífið
Einstaklega gott námskeið og þú Áshildur með svo góða nærveru.
Þetta er gott námskeið til að kynnast sjálfri sér betur og finna sinn innri styrk. 
Mæli svo sannarlega með :)
Virkilega vel gert, falleg bók og Áshildur hefur einstaka nærveru,
góður hópur og gaman og fallegt að upplifa samkennd og skilning.
 
Áshildur er alveg einstök og gerði þetta allt svo vel.
Bókin er mjög vel unnin og er hún frábært tól til að öðlast meiri sjálfsþekkingu.
 
Frábært námskeið sem gaf mér aukið sjálfstraust, betri skilning á styrkleikum mínum og hugrekki til að fara á eftir því sem mig langar. 
​Áshildur hefur einstaka nærveru og það var alltaf gaman og gefandi að koma í tíma til hennar.
Áshildur Hlín er yndisleg manneskja og frábær kennari. Hún hefur dásamlega nærveru og fylgist vel með hvort allir séu að taka þátt. Tímarnir eru mjög góðir og vel settir upp, bókin er líka mjög falleg og auðlesin. Þessir tímar veittu mér tilhlökkun, fróðleik og forvitni. 
Ég mæli 100% með þessu námskeiði Sjálfsþekking - leið til lífs í flæði.
Með bestu kv Sólborg
Námskeiðið var að mínu mati afar vel heppnað þar sem leiðbeinandinn fór í gegnum kaflana á skýran hátt og gaf þátttakendum gott rými til að tjá sig og fá speglun. Námsefnið var einkar vel framsett og það var bæði gaman og gagnlegt að fara í gegnum efnið. 
 
Á eftir að glugga oft í þessa fallegu bók.
Þúsund þakkir fyrir að kveikja á ljósum sem voru slökkt.
 
Mjög gagnlegt og skemmtilegt námskeið. Skerpir á sjálfsvitundinni og hjálpar til við að móta eða staðfesta stefnuna í lífinu.
Mjög gott námskeið sem fyllir mann eldmóð og nærir sálina.
Takk fyrir mig!
Ég hef verið móðir í rúm 20 ár, þrátt fyrir að vera ekki nema fertug. Ég dreifði börnunum vel yfir þetta tímabil og er yngsta barnið einungis tveggja ára. Það hefur því verið nokkuð mikið að gera og alls konar áskoranir poppað upp. 
Í öllu þessu amstri virðist ég hafa gleymt sjálfri mér. Ég var komin ansi aftarlega á listann og gerði bókstaflega ekkert fyrir sjálfa mig. Eina ástæðan fyrir því að ég skráði mig á námskeiðið var vegna þess að það var á vinnutíma og í gegnum vinnuna. Ég hefði annars aldrei gefið sjálfri mér þennan tíma. 
1/3
Ég hef lengi verið meðvituð um að ég þyrfti kannski að fara að gera eitthvað fyrir sjálfa mig. Hugsaði líka oft að það væri eitthvað sem vantaði í líf mitt. Skildi samt aldrei af hverju, því ég hefði það nú bara nokkuð gott, heilbrigð börn, hamingjusamt hjónaband, gott starf, fallegt heimili.
Hvað annað er hægt að biðja um?
Það var á þessu námskeiði sem ég áttaði mig á að ég var í raun búin að týna sjálfri mér. 
2/3
 
Ég gleymdi alveg að setja súrefnisgrímuna á mig. Ég var hætt að gera hluti sem glöddu mig og ég hafði raunverulega ánægju af. Það er að segja hluti sem ég gerði ein og bara fyrir mig og engan annan. 
Ég hef trú á að þessi litlu skref sem ég er byrjuð að taka, eins og að sinna áhugamálunum mínum, muni gera mig að betri móður og eiginkonu.
Eins klisjukennt og það er, þá er ég, held ég bara, betri útgáfa af sjálfri mér. 
3/3
Mjög gott námskeið sem fékk mann til að horfa á hlutina með öðrum gleraugum og skoða hlutina frá fleiri en einni hlið.
 
Mjög gott námskeið og vel haldið utan um okkur. Umræður góðar og ég fann til öryggis í hópnum mínum. Gátum rætt hvað sem er vitandi það að trúnaðar var gætt. Tímastjórnun var góð og mér leið alltaf vel í hjartanu eftir hvern tíma. 
Takk fyrir mig.
 
Hefði vissulega viljað kafa dýpra í innsæið því það er svo áhugavert! Efnið fannst mér samt svo listilega framsett með það fyrir augum að auka sjálfsþekkingu. Námskeiðinu var líka stýrt af alúð og festu sem endurspeglaðist í því hversu hratt traust myndaðist innan hópsins. Mér finnst ég ríkari að hafa tekið þátt og vona að margir eigi eftir að fá að njóta.

Vertu með!

ÁHV3.jpg

Öflug sjálfsþekking er gullni áttavitinn sem þú leitar að

sjalfsthekking.bok.jpg
IMG_9858.jpeg

Vertu sjálffræðingur

Snilldar verkfæri í alla sjálfsvinnu! Hentar mjög vel í kennslu, fyrir einstaklingssamtöl og hópastarf.

Íslensk, litrík spil með 42 styrkleikum og útskýringum á bakhlið. Með hverjum stokk fylgir hugmyndbanki, virkar fyrir allan aldur, 5 - 105 ára.

77053039_533513027381118_6336918460756393984_n.jpg

Námskeið fyrir grunnskóla

  • 1,5 klst. örnámskeið fyrir allt starfsfólk grunnskóla.​​
  • Fyrirlestur, spurningar og æfingar fyrir stóran hóp
  • Verkfæri innifalið í námskeiðsverði, styrkleikaspil sem nýtast á fjölbreyttan hátt fyrir 5-105 ára.
  • Byggt á rannsóknum jákvæðrar sálfræði.
Hafðu samband til að kanna námskeið fyrir þinn hóp! 
styrkleikafærni.jpg

Góð áminning um í hverju við erum sterk og hvernig við nýtum styrkleikana okkar til góðs.

Ása var skýr og kom efninu vel frá sér.  Léttur og skemmtilegur fyrirlestur. Spilin frábær.

​- Þátttakandi í Holtaskóla

bottom of page